Danska fótboltabullan mokar inn seðlunum Óli Tynes skrifar 5. september 2007 11:37 Á Parken í júní. Nú brosir bullan alla leiðina í bankann.
Danska fótboltabullan sem reyndi að kýla dómarann í leik Dana og Svía í Parken í júní hefur selt danskri sjónvarpsstöð einkarétt á sögu sinni og græðir nú á tá og fingri. Hann bætir svo gráu ofan á svart með því að heimta eina milljón króna af öðrum fjölmiðlum fyrir að veita viðtöl -eftir að búið er að sýna þáttinn á dönsku stöðinni. Í danska og sænska knattspyrnusambandinu eru menn æfir af reiði. Hinn tuttugu og níu ára gamli Dani er búsettur í Svíþjóð. Hann hefur ekki verið nafngreindur af ótta við hefndaraðgerðir. Fyrir rétti var hann dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir framferði sitt. Sömuleiðis til að skila 40 klukkustundum í þegnskylduvinnu. Dómarinn sagði að farið væri um hann mildari höndum en ella vegna þess hve þessi atburður hefði haft neikvæð áhrif á líf hans. Þessi fómur var felldur í gær. Í dag upplýsir hinsvegar bullan að hann hafi selt Stöð 5 í Danmörku einkaleyfi á sögu sinni. Miklar upphæðir hafa verið nefndar en Stöð 5 vill ekkert staðfesta. Sérstaklega eru menn reiðir yfir þessu í danska Knattspyrnusambandinu. Það fékk langt leikbann í Parken og verður að spila sína leiki utan Kaupmannahafnar. Sambandið segir að það kosti það tíu milljónir króna fyrir hvern leik.
Erlent Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira