Háttsettur al-Kaída liði felldur Kristinn Hrafnsson í Írak skrifar 29. september 2007 18:45
Bandarísk hermálayfirvöld segjast hafa fellt háttsettan liðsmann al-Kaída í Írak í vikunni. Írakar segja almenna borgara hafa falliði með honum - því neita Bandaríkjamenn. Bandaríkjamenn fullyrtu í gær að þeir hefðu fellt einn mikilvægasta leiðtoga al Kaída hryðjuverkasamtakanna í Írak. Sá er frá Túnis, Abu Usama al-Tunisi. Talið er að hann hafi skipulagt mannrán og morð á bandarísku hermönnum í Írak síðastliðið sumar. Bandaríski herinn segir al-Tunisi hafa fallið í loftárásum á skotmörk hér í Bagdad fyrr í vikunni. 20 til viðbótar týndu einnig lífi. Írakar segja suma þeirra hafa verið almenna borgara. Því hafna Bandaríkjamenn - þetta hafi verið andspyrnumenn. Al-Tunisi mun hafa verið með bækistöðvar í suðvestur Bagdad síðan barist var um Falluja í nóvember 2004. Hann mun hafa skipulagt rán á tveimur bandarískum hermönnum í júní í fyrra. Lík þeirra fundust skömmu síðar. Bandaríkjamenn segja viðbótarlið upp á um þrjátíu þúsund bandaríska hermenn hafa gert gæfumuninn í baráttunni við al-Kaída. Færri morð séu framin og ekki eins mörgum rænt. Búið er að hólfa Bagdad niður og segja margir hér að það minni um margt á aðgerðir í Belfast þegar barist var sem mest á Norður-Írlandi. Talsmaður Bandaríkjahers segir að tekist hafi verið að hefta straum erlendar bardaga manna hingað til Íraks með harðari landamæragæslu. Þrátt fyrir þessa yfirlýsingar fundust fimm lík í jafnmörgum hverfum Bagdad í gær auk þess sem al Kaída liðar sem enn ganga lausir gerðu árás á súnnía sem voru að störfum fyrir Bandaríkjaher suður af höfuðborginni.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira