Dauðafley á Miðjarðarhafi 29. október 2007 15:32 Bátar flóttamanna frá Afríku eru tíðast hin mestu skrifli.
Fimmtíu og sex Afríkubúar sem reyndu að komast ólöglega til Spánar, sultu í hel eða frömdu sjálfsmorð eftir að í ljós kom að varabirgðir þeirra af eldsneyti voru bara vatn. Spænskur fiskibátur fann opinn bát flóttafólksins á reki tuttugu og einum degi eftir að hann lagði upp frá Vesturströnd Afríku.Aðeins skipstjórinn var á lífi og var hann að dauða kominn. Í viðtali við spænska blaðið El Pais sagði skipstjórinn að á fjórða degi siglingarinnar hafi eldsneytið verið á þrotum í fyrsta geyminum. Þegar átti að bæta í af varabirgðunum kom í ljós að það hafði verið leikið á flóttafólkið. Í varageymunum var ekkert nema vatn.Skipstjórinn segir að mikil skelfing hafi gripið um sig. Báturinn hafi þá verið 157 kílómetra frá Kanaríeyjum, samkvæmt GPS leiðsögukerfisins. Eldsneytislausan bátinn rak svo 2000 kílómetra suðurfyrir Kanaríeyjar og 1000 kílómetra frá brottfararstað í Máritaníu.Þegar maturinn var að klárast byrjuðu farþegarnir að berjast innbyrðis. Að minnsta kosti tíu þeirra frömdu sjálfsmorð með því að stökkva í sjóinn. Aðrir notuðu tækifærið þegar meðfarþegar þeirra sváfu til þess að fleygja þeim í sjóinn. Svo segir skipstjórinn að farþegarnir hafi sofnað einn af öðrum og ekki vaknað aftur. Þegar báturinn fannst voru ennþá sjö látnir farþegar um borð. Skipstjórinn segist ekki hafa haf þrótt til að kasta þeim í sjóinn.Hann liggur nú á sjúkrahúsi í Dakar. Lögreglan í Senegal ætlar að rannsaka málið til að komast að því hvort hann beri á einhvern hátt ábyrgð á dauða fólksins.
Erlent Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira