Topplaus uppreisn í Svíþjóð 13. nóvember 2007 10:25 Sænskar konur vilja synda topplausar.
Ungar konur í Svíþjóð hafa gert uppreisn gegn því að fá ekki að fara topplausar í almenningssundlaugar. Þetta byrjaði 5. september síðasliðinn í sundlaug í Uppsölum. Tvær systur, Ragnhildur og Kristín Karlsson fóru berbrjósta í laugina. Laugarvörður var fljótur að kalla þær að bakkanum og sagði þeim að annaðhvort yrðu þær að klæða sig í að ofan, eða fara úr lauginni. "Er hægt að kalla þetta eitthvað annað en kynjamismunun?" spurði Ragnhildur á bloggsíðu sinni. Hálfum mánuði síðar fengu systurnar birt lesendabréf í dagblaðinu Dagens Nyheter, þar sem þær kvörtuðu. Í kjölfarið var viðkomandi sundlaug kærð til jafnréttisráðs Svíþjóðar. Þar er málið nú til meðferðar. En meðan það er að velkjast í kerfinu hefur uppreisn systranna breiðst út. Til urðu samtökin Ber brjóst, og félagar í þeim hafa margsinnis farið topplausar í sundlaugar í Malmö og Lundi. Tvær kvennanna segja í blaðaviðtali að fyrir þeim vaki að koma af stað umræðu um þær óskráðu félagslegu og menningarlegu reglur sem kyngeri og mismuni líkama kvenna. "Við viljum að brjóst okkar verði jafn sjálfsögð og kynlaus og brjóst karlmanna, svo við getum líka farið úr að ofan á fótboltaleikjum," segja þær.
Erlent Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira