Játaði kúrdamorð yfir kaffibolla Óli Tynes skrifar 14. nóvember 2007 14:39 Saddam Hussein.
Þegar Bandaríkjamenn yfirheyrðu Saddam Hussein fóru þeir mjúku leiðina. Alríkislögreglumaðurinn George Piro eyddi fimm klukkustundum á dag í sjö mánuði við að yfirheyra einræðisherrann. Þeir drukku saman kaffi og reyktu vindla frá Kúbu á veröndinni fyrir aftan fangaklefa Saddams. Piro talar arabisku reiprennandi. Hann segir að þeir hafi spjallað um heima og geima, meðal annars um íþróttir og ritverk Saddams. Alríkislögreglumaðurinn segir að þegar þeir loks kvöddust hafi Saddam tárast. Í nýrri bók eftir Ron Kessler segir Piro að þessi aðferð hafi skilað góðum árangri. Yfir kaffibolla hafi Saddam meðal annars viðurkennt að hafa myrt 180 þúsund kúrda og að hafa reynt að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Hann hefði líka látið umheiminn halda að hann ætti gereyðingarvopn. Það hefði þó aðallega verið til að halda Írönum í skefjum. Saddam upplýsti einnig að þrátt fyrir þrálátar fréttir þar um hafi hann aldrei notað tvífara. "Enginn gat leikið mig," sagði hann. Hann viðurkenndi líka að hafa bruggað sjálfum sér launráð, til þess að sjá hverjir fengjust til þess að taka þátt í því. Þeir hinir sömu voru teknir af lífi.
Erlent Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira