Leki olli sprengingu Sighvatur Jónsson í Árósum skrifar 4. desember 2007 18:45
Leki í efnaverksmiðju í Árósum í Danmörku er talinn orsök gríðarlegrar sprengingar sem í nótt kostaði einn starfsmanna hennar lífið. Líklegt er að sprengihætta hafi skapast þegar efni sem líkist bensíni slapp út í andrúmsloftið. Sprengingin varð í byggingu efnafyrirtækisins Aarhus Karlshamn sem er með viðamikla starfsemi við höfnina í Árósum. Fyrirtækið framleiðir fituefni sem eru notuð í matvörum og snyrtivörum. Talið er að leki á birgðasvæði verksmiðjunnar í kjallara hennar hafi leitt til sprengingarinnar í nótt. Tveir starfsmenn sem voru á svæðinu sluppu ómeiddir, en sá þriðji, 54 karlmaður, lést samstundis. Benny Jakobsen, framleiðslustjóri Aarhus Karlshamn, segir alla hjá fyrirtækinu harmi slegna yfir atvikinu. Svona slys mega ekki eiga sér stað. Talið er að hinn látni hafi farið að leita orsaka leka, þegar hann fann lykt af hinu eldfima efni hexan, sem hefur svipaða eiginleika og bensín. Jakbosen segir það mjög hættulegt þegar efni eins og bensín liggur á gólfi í svona verksmiðju. Við uppgufun myndist mjög sprengifimt efni. Hann segir sprenginguna hafa verið öfluga. Töluverðar skemmdir urðu á byggingunni. Vegna sprengihættu var kælifroða notuð við slökkvistörf. Lokað var fyrir alla umferð um hafnarsvæðið þar til undir morgun þegar allur eldur hafði verið slökktur.
Erlent Fréttir Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira