Sport

Ragnheiður í 15. sæti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnheiður Ragnarsdóttir sundkona.
Ragnheiður Ragnarsdóttir sundkona. Mynd/Anton

Ragnheiður Ragnarsdóttir sundkona varð í dag í 15. sæti í 50 metra skriðsundi á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug í Debrecen í Ungverjalandi.

Ragnheiður synti á 25,55 sekúndum sem er tíu hundraðshlutum lakar en í undanrásunum í morgun. Íslandsmet hennar er 25,30 sekúndur.

Marleen Valdhuis frá Hollandi var með besta tímann í undanúrslitunum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×