Körfubolti

Shaquille O´Neal: Hætti eftir 735 daga

NordicPhotos/GettyImages

Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Phoenix Suns í NBA deildinni segist ætla að spila þau tvö ár sem hann á eftir af samningi sínum við félagið og leggja skóna á hilluna eftir það.

O´Neal er 36 ára gamall og hefur unnið fjóra meistaratitla á ferlinum, þrjá með Lakers og einn með Miami.

Í samtali við fjölmiðla á Flórída í gær, gaf O´Neal upp framtíðaráform sín með nákvæmum hætti.

"Körfuboltaferli mínum mun ljúka eftir 735 daga og þar sem ég er menntaður maður, hef ég alltaf haft eitthvað til að snúa mér að utan körfuboltans. Einn af möguleikunum sem koma til greina eru löggæslustörf," sagði tröllið.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×