Körfubolti

Iguodala mun líklega framlengja við Sixers

Iguodala er mikill íþróttamaður
Iguodala er mikill íþróttamaður NordcPhotos/GettyImages

Hinn fjölhæfi Andre Iguodala hjá Philadelphia 76ers í NBA deildinni mun hafa samþykkt að framlengja samning sinn við félagið um sex ár. Sagt er að Iguodala, sem spilar sem bakvörður og framherji, muni fá um 80 milljónir dollara fyrir samninginn.

Lið Philadelphia kom nokkuð á óvart í NBA á síðustu leiktíð og náði að stríða sterku liði Detroit Pistons í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Þá fékk félagið til sín framherjann Elton Brand frá LA Clippers í sumar og því eru bundnar miklar vonir við liðið á næstu leiktíð í Austurdeildinni.

Andre Iguodala skoraði um 20 stig að meðaltali í leik síðasta vetur og hefur bætt stigaskor sitt öll fjögur ár sín í deildinni.

Smelltu hér til að sjá tölfræði Iguodala á fjórum árum sínum með 76ers. 



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×