Körfubolti

Harrington vill fara frá Warriors

NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Al Harringon virðist ekki eiga framtíð fyrir sér hjá Golden State Warriors í NBA deildinni. Hann fór fram á að vera skipt frá félaginu fyrir skömmu og þjálfari hans Don Nelson virðist vera alveg til í að losna við hann.

"Al er viss um að hann sé súperstjarna. Ég tel hann vera mjög góðan leikmann. Hann vill fara og ég er viss um að við getum komið því í kring," sagði Don Nelson kuldalega í samtali við ESPN.

Óhætt er að áætla að nokkur lið hafi áhuga á að fá Harrington í sínar raðir en hann fékk talsvert minna að spila hjá Warriors á síðustu leiktíð en árin áður og var þar með með nokkuð lakari tölfræði.

Hann skoraði 13,6 stig að meðaltali í leik síðasta vetur, spilaði 81 leik og var í byrjunarliðinu í þeim flestum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×