Körfubolti

NBA: New Orlenas vann San Antonio

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ofurhuginn Super Hugo stekkur í gegnum eldhring í leik New Orleans og Detroit í nótt. Atriðið mistókst og tafði það leikinn um 20 mínútur.
Ofurhuginn Super Hugo stekkur í gegnum eldhring í leik New Orleans og Detroit í nótt. Atriðið mistókst og tafði það leikinn um 20 mínútur. Nordic Photos / Getty Images
Fyrstu leikirnir í annarri umferð úrslitakeppninnar í NBA-deildinni fóru fram í gær. New Orleans vann San Antonio og Detroit vann Orlando.

Aðeins einn leikur er eftir í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en það er oddaleikur Boston og Atlanta. Sá leikur hefst klukkan 17.00 í dag og verður í beinni útsendingu á NBA TV.

Það voru liðin á heimavelli sem unnu leiki sína í nótt en margir telja að rimma New Orleans og San Antonio verði sú áhugaverðasta í annarri umferð.

New Orleans vann San Antonio, 101-82, þar sem öflugur varnarleikur heimamanna varð til þess að Tim Duncan skoraði einungis fimm stig í leiknum.

David West fór á kostum á leiknum og skoraði 30 stig en Chris Paul var einnig öflugur sem fyrr og var með sautján stig og þrettán stoðsendingar.

San Antonio var ellefu stigum yfir seint í fyrri hálfleik en heimamenn mættu mjög grimmmir til hálfleiks í þeim síðari og kláruðu leikinn.

Duncan hitti úr aðeins einu af níu skotum sínum utan af velli í leiknum og tók einungis þrjú fráköst.

Tony Parker var stigahæstur hjá San Antonio með 23 stig.

En þó vakti eflaust mesta athygli er að leikurinn tafðist um 20 mínútur eftir fyrsta leikhluta er atriði með lukkudýri Hornets fór úrskeðis. Lukkudýrið átti að stökkva í gegnum eldhring en það fór á versta veg og þurfti að nota slökkvitæki á vellinum. Það tók þennan tíma að þrífa völlinn.

Detroit vann Orlando, 91-72, þar sem fyrrnefnda liðið tók öll völd í þriðja leikhluta og kláraði svo leikinn af miklu öryggi í þeim fjórða.

Chauncey Billups skoraði nítján stig fyrir Detroit og Richard Hamilton sautján.

Rashard Lewis og Hedu Turkoglu skoruðu átján stig hver fyrir Orlando. Dwight Howard var með tólf stig og átta fráköst.

Leikur númer tvö í báðum rimmum fer fram annað kvöld.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×