Körfubolti

Cheeks framlengir við Philadelphia

NordicPhotos/GettyImages

Maurice Cheeks, þjálfari Philadelphia 76ers í NBA deildinni, hefur framlengt samning sinn við félagið í annað skipti á sjö mánuðum.

Cheeks spilaði með Philadelphia sem leikmaður í 11 ár og tók við þjálfun liðsins árið 2005 eftir að hafa stýrt Portland í meira en 500 leiki.

Framtíðin er spennandi hjá liði Philadelphia um þessar mundir, en liðið tók stórt stökk á síðustu leiktíð og komst óvænt í úrslitakeppnina þar sem það tapaði fyrir Detroit í sex leikjum í fyrstu umferð.

Í sumar fékk liðið til sín kraftframherjann Elton Brand frá LA Clippers og nokkra fleiri leikmenn og því eru talsverðar vonir bundnar við liðið í baráttunni í Austurdeildinni á komandi vetri.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×