Körfubolti

Turiaf til Golden State

Turiaf er hér í baráttu við Kevin Garnett í lokaúrslitunum í sumar
Turiaf er hér í baráttu við Kevin Garnett í lokaúrslitunum í sumar NordcPhotos/GettyImages

Miðherjinn Ronny Turiaf hjá LA Lakers mun leika með Golden State Warriors í NBA deildinni á næstu leiktíð. Turiaf var með lausa samninga og fékk tilboð frá Warriors sem forráðamenn Lakers voru tregir til að jafna.

Golden State mun greiða leikmanninum um 17 milljónir dollara fyrir fjögurra ára samning.

Ákvörðun forráðamanna Lakers er að miklu byggð á því að þeir reikna með því að hinn ungi Andrew Bynum muni ná sér að fullu af meiðslum sínum og spila flestar mínútur í miðjunni næsta vetur, en hann hefur verið frá keppni síðan í janúar sl.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×