Mangó og salvíumarineruð kalkúnabringa 29. desember 2008 11:40
Mangó og salvíu marineruð Kalkúnabringa með sítrus-heslihnetu gremolata og smjörsteiktu grænmeti ásamt Bordelaise-sósu og sætum kartöflum.Innihald: 1 meðalstór kalkúnabringa ca 1 til 1,5 kgMarinering:1 stk Mango60 til 80 gr sykur3 msk ferskt saxað Salvía2 msk ferskt saxað kóríander1 Sítróna1 rauð paprika1 dl ólífuolíaAðferð: Flysjið utan af mangónum og skerið utanaf steininum sem liggur í miðjum mangónum. Skerið í jafna teninga, leggið í skál og stráið sykrinum yfir. Setjið yfir vatnsbað í 30 til 60 min eða þar til mangoin er mjúkur og sætur. Skerið paprikuna í tvennt og setjið á ofnskúffu, bakið í 15 til 20 mín í ofninum við 230 gráðu hita eða þar til paprikan en orðin brennd að utan. Takið þá paprikuna út og látið kólna aðeins, takið þá brennda hýðið utan af henni og hendið, eftir situr sæt paprika. Setjið papriku, salvíu, kóríander og mangó ásamt rifnum berki og safanum úr sítrónunni í matvinnsluvélina og hellið olíu saman við og smakkið til með salti og pipar. Setjið í plastpoka með kalkúnabringunni og látið marinerast í lágmark 8 tíma. Best er að gera þetta deginum áður og láta bringuna liggja í 24 tíma.Bordelaise-sósa115 gr smjör8 stk skallottulaukar - (saxaðir smátt)6 stk hvítlauksgeirar - (saxaðir smátt)300 ml Bordeux-rauvín1 kryddvöndur - (lárviðarlauf, timiangrein, steinseljustilkur)24 hvít piparkorn - (grófsteitt)6 timiangreinar1 rósmaringrein175 ml kálfasoð175 ml kjúklingasoðAðferð: Bræddu helminginn af smjörinu í stórum potti og láttu skallottulauk og hvítlauk krauma í því í 5 mín. Hrærðu oft á meðan. Bættu við víni, kryddvendi, piparkornum, timjani og rósmaríni, hitaðu að suðu og láttu sjóða þar til vökvinn er þykkur og sírópskenndur. Helltu kálfa og kjúkklingasoðinu í pottinn og láttu malla við vægan hita í 40 mín. Fleyttu froðu ofan af eftir þörfum. Veiddu kryddvöndinn og kryddjurtagreinarnar upp úr. Taktu sósuna af hitanum og þeyttu afganginum af smjörinu saman við.Strengjabaunir & gulrætur með sítrus-heslihnetu gremolata500 gr Strengjabaunir1 ½ bolli Gulrætur2 msk Heslihnetur-(eða möndlur)2 msk steinselja (Flat-leaf)1 ½ tsk Appelsínubörkur1 tsk Limebörkur½ tsk Sítrónubörkur1 msk Smjör1 msk Ólífuolía2 Hvítlauksgeirar-( saxaðir)1 Skalottulaukur-(saxaður)Aðferð Forsjóðið baunirnar og gulræturnar í léttsöltu vatni í u.þ.b. 10 mín eða þar til það er orðið mjúkt, sigtað og sett til hliðar. Setjið saman gremolata og hrærið saman í lítilli skál hnetum, steinselju, sítrónuberki, appelsínuberki, limeberki og setjið til hliðar. Hitið olíu og smjör saman á pönnu á meðalháum hita, setjið lauk og hvítlauk á pönnu og hrærið vel í 1 til 2 mín eða þar til laukurinn er orðin mjúkur. Setja saman við baunir, gulrætur, salt og pipar. Veltið grænmetinu á pönnunni til að hita allt í gegn setjið grænmetið í skál og stráið gremolata jafnt yfir.Sætar kartöflur með beikoni250 gr Sætar kartöflur- (skorið í grófa bita)250 gr Sellerýrót-(skorið í grófa bita)100 gr Bacon(parma-serano skinka)6-8 greinar Blóðberg (thymjan)30 gr smjör2 msk olíaAðferð Steikið kartöflur, selleryrót og beikon saman á pönnu í olíu og smjöri, kryddið með blóðbergi og setjið á ofnskúffu. Setjið í 180 gr heitan ofninn í 8-10 mín. Takið úr ofninum og setjið í skál.
Jói Fel Kalkúnn Uppskriftir Mest lesið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni David Hockney er látinn Menning Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Fleiri fréttir Brennivín hlaut gullverðlaun Sjá meira