Körfubolti

Battier missir af æfingabúðum Houston

Battier er öflugur varnarmaður og hitti úr 38% þrista sinna á síðustu leiktíð
Battier er öflugur varnarmaður og hitti úr 38% þrista sinna á síðustu leiktíð NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Shane Battier hjá Houston Rockets mun ekki geta tekið þátt í æfingabúðum liðsins sem hefjast eftir helgi vegna ökklameiðsla.

Battier fór í aðgerð á ökkla í vor en fóturinn tók að bólgna í endurhæfingunni og verður líklega frá æfingum næsta mánuðinn.

Rockets-menn þurfa þó ekki að örvænta því liðið fékk í sumar til sín framherjann Ron Artest sem keppa mun við Battier um stöðu í byrjunarliðinu.

Lykilmenn Houston liðsins hafa átt við erfið meiðsli að stríða síðustu ár og má rekja það sérstaklega til lykilmanna eins og Yao Ming og Tracy McGrady.

Miklar vonir eru bundnar við lið Houston í vetur eftir að Artest bættist í leikmannahópinn, en það er þó væntanlega háð því að lykilmenn haldist heilir á komandi leiktíð.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×