Körfubolti

Engin útsala hjá Pistons

Detroit hefur verið eitt besta lið NBA deildarinnar síðustu ár
Detroit hefur verið eitt besta lið NBA deildarinnar síðustu ár NordicPhotos/GettyImages

Joe Dumars, forseti Detroit Pistons í NBA deildinni, segir að liðið muni mæta óbreytt til leiks á komandi leiktíð í deildinni.

Það kemur kannski ekki til af góðu því Dumars lýsti því yfir í vor að aðeins einn leikmaður í liðinu, hinn ungi Rodney Stuckey, kæmi ekki til greina í leikmannaskiptum í sumar.

Detroit féll úr leik í úrslitum Austurdeildarinnar þegar það tapaði 4-2 fyrir meisturum Boston, en þó liðið hafi komist þetta langt í úrslitakeppninni sjötta árið í röð - þykir það ekki viðunandi árangur hjá liðinu sem varð síðast meistari árið 2004.

Dumars segir að engar fyrirsjáanlegar breytingar verði á leikmannahópnum því hann hafi einfaldlega ekki fengið nein tilboð í leikmenn liðsins sem vert væri að skoða.

Dumars rak þjálfarann Flip Saunders eftir tapið gegn Boston í vor og í stað hans var hinn óreyndi Michael Curry ráðinn til að taka við liðinu.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×