Ísland í þriðja skiptið í undanúrslit á stórmóti Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. ágúst 2008 08:23 Ólafur Stefánsson í leiknum gegn Pólverjum í morgun. Mynd/Vilhelm
Ísland tryggði sér í morgun sæti í undanúrslitum á stórmóti í handbolta í þriðja skiptið í sögunni - og í annað skiptið á Ólympíuleikum. Ísland lagði Pólland í fjórðungsúrslitum í morgun, 32-30. Í bæði skiptin hefur Ísland tapað sínum viðureignum í undanúrslitum sem og leiknum um þriðja sætið. Ísland hefur því aldrei unnið til verðlauna á stórmóti í handbolta. Árið 1992 komst Ísland í undanúrslit á Ólympíuleikunum í Barcelona og mætti þar Samveldinu, fyrrum Sovétríkjunum. Samveldið vann, 23-19, og urðu síðar Ólympíumeistarar eftir sigur á Svíum í úrslitaleik. Tíu árum síðar, 2002, mætti Ísland Svíum í undanúrslitum á EM í Svíþjóð. Heimamenn rústuðu íslenska landsliðið, 33-22, og unnu svo Þjóðverja í úrslitum á umdeildu marki. Bæði liðin sem Ísland hefur mætt í undanúrslitum stórmóta hafa því orðið meistarar í kjölfarið. Þess má reyndar geta að Ísland vann fræga B-heimsmeistarakeppni í handbolta árið 1989 eftir sigur á Pólverjum í úrslitum, 29-26. Það er einnig athyglisverð staðreynd að tvívegis hafa verið gerðar miklar væntingar til íslenska landsliðsins fyrir Ólympíuleika. Annars vegar 1988 í Suður-Kóreu og hins vegar 2004 í Grikklandi. Bæði skiptið náði íslenska landsliðið ekki að standa undir þeim væntingum en á næstu leikum á eftir (1992 og 2008) komst liðið í undanúrslit. Þar sannast hið forkveðna - íslensk lið standa sig best þegar fæstir eiga von á því.
Handbolti Mest lesið Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Fótbolti Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Fótbolti Fleiri fréttir Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Rakel Dögg: Lokuðum vel varnarlega og Alfa skildi liðin að sóknarlega Uppgjörið: Fram - Haukar 27-26 | Heimakonur unnu æsispennandi leik Fyrsti sigurinn hjá bæði Stjörnukonum og Framkörlum Segir að Haukur Þrastar geti gert mikið fyrir íslenska landsliðið á HM í janúar Stjarnan sótti ekki gull í greipar Eyjamanna „Þurfum að vera fljótir að læra“ Valur ekki í vandræðum í Vestmannaeyjum Íslenskt markaflóð í Svíþjóð Sjá meira