Körfubolti

Elton Brand semur við 76ers

Mikið var um að vera á leikmannamarkaðnum í NBA deildinni í dag þegar félög í deildinni gátu kynnt nýja leikmenn sína til leiks.

Framherjinn Elton Brand gerði í dag fimm ára samning við Philadelphia 76ers sem talinn er gefa honum um 80 milljónir dollara í laun. Brand var áður hjá LA Clippers, en gamla félagið hans gerði í dag samning við leikstjórnandann Baron Davis sem kom frá Golden State Warriors.

Þá framlengdi ástralski miðherjinn Andrew Bogut samning sinn við Milwaukee Bucks um fimm ár og fær fyrir um 60 milljónir dollara.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×