Körfubolti

Taplaust lið Atlanta sækir meistarana heim

Kevin Garnett og félagar fá taplaust lið Atlanta í heimsókn í nótt
Kevin Garnett og félagar fá taplaust lið Atlanta í heimsókn í nótt NordicPhotos/GettyImages

Í nótt klukkan hálfeitt verður bein útsending á NBA TV sjónvarpsstöðinni frá leik meistara Boston Celtics og Atlanta Hawks í NBA deildinni.

Þetta verður væntanlega hörkuleikur þar sem meistararnir hafa unnið sjö af átta fyrstu leikjum sínum í vetur en Atlanta hefur unnið sex fyrstu leiki sína - þar af alla fjóra útileiki sína.

Þessi lið mættust í fyrstu umferð úrslitakeppninnar síðastliðið vor og þar höfðu meistararnir naumlega betur í oddaleik í hörkueinvígi.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×