Terry: Vítaspyrnan verður í huga mér alla ævi 24. maí 2008 21:43 AFP
John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur nú loksins tjáð sig opinberlega um vítaspyrnun sem hann misnotaði í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í vikunni. Terry gat þá tryggt Chelsea Evrópubikarinn, en rann í skrefinu og skaut í stöng. Terry var gjörsamlega niðurbrotinn eftir vítakeppnina þar sem Manchester United vann sigur í bráðabana. Leikurinn var framlengdur og eftir það varð að grípa til vítakeppni. Terry gat tryggt Chelsea sigur með fimmtu spyrnu liðsins eftir að Cristiano Ronaldo misnotaði sína spyrnu fyrir United. Terry hefur nú tjáð sig í fyrsta sinn og ritar opið bréf til stuðningsmanna Chelsea á heimasíðu félagsins. "Mér þykir fyrir því að hafa misnotað spyrnuna sem hefði geta fært okkur sigur í Meistaradeildinni. Mér hefur verið sagt að kenna sjálfum mér ekki um það, en ég er nú bara svona. Ég hef lítið sofið síðan og hugsa um þetta hverja mínútu," sagði Terry. Hann segist ekki ætla að láta Moskvu-martröðina buga sig. "Ég er nógu mikill maður til að viðurkenna að ég brást, en ég vil þó þakka þeim sem hafa reynt að hughreysta mig síðan. Ég skammast mín ekki fyrir að gráta, en ég veit að þetta kvöld á eftir að sækja að mér alla mína ævi. Ég er þó viss um að ég mun vinna þennan titil bæði sem leikmaður og síðan sem þjálfari," sagði Terry og sagði Chelsea strax vera farið að horfa til Rómar, en þar verður úrslitaleikur keppninnar á næsta ári.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Fleiri fréttir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Sjá meira