Körfubolti

Kobe Bryant fór á kostum í sigri Lakers

Elvar Geir Magnússon skrifar
Kobe Bryant átti stórleik.
Kobe Bryant átti stórleik.

Kobe Bryant átti sannkallaðan stjörnuleik fyrir Los Angeles Lakers sem vann Denver 122-107 í úrslitakeppni NBA í nótt. Hann skoraði 49 stig og átti 10 stoðsendingar.

Lakers er því komið í 2-0 í þessu einvígi en næstu leikir verða á heimavelli Denver. Allen Iverson var stigahæstur í liði Denver með 31 stig og þá átti hann 6 stoðsendingar.

Tveir aðrir leikir voru í nótt. Boston Celtics er einnig komið í 2-0 í einvígi sínu við Atlanta Hawks. Boston vann 96-77 í nótt en stigahæstur í liði heimamanna var Kevin Garnett með 19 stig og þá tók hann 10 fráköst. Josh Smith og Marvin Williams voru með 13 stig hvor fyrir Atlanta.

Þá vann Detroit sigur á Philadelphia 105-88 og er staðan í einvígi þessara liða því jöfn 1-1. Richard Hamilton skoraði 20 stig og átti 7 stoðsendingar í liði Detroit. Hjá Philadeplhia skoraði Louis Williams stigahæstur með 17 stig.

Það voru því heimasigrar í öllum þremur leikjunum í nótt.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×