Körfubolti

Gáfu fórnarlömbum Ike 3,5 tonn af hjálpargögnum

NordicPhotos/GettyImages

NBA félagið Houston Rockets lagði fórnarlömbum fellibylsins Ike lið og dreifði þremur og hálfu tonni af vistum. Hér var um að ræða mat, vatn og hreinlætisvörur.

Leikmenn Rockets aðstoðuðu við að dreifa varningnum til þeirra sem urðu illa úti í óveðrinu á dögunum, en fjórir vörubílar með tengivagna báru vistir sem félagið lagði til í átakinu.

Leikmenn Rockets fluttu allir úr borginni þegar óveðrið skall á, en talsmaður félagsins segir að helmingur af starfsfólki liðsins sé enn án rafmagns á heimilum sínum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×