Körfubolti

Framkvæmdastjórar tippa á Lakers

Pau Gasol, Kobe Bryant og Andrew Bynum eru taldir líklegir til afreka með Lakers í vetur
Pau Gasol, Kobe Bryant og Andrew Bynum eru taldir líklegir til afreka með Lakers í vetur NordicPhotos/GettyImages

Keppnistímabilið í NBA deildinni hefst þann 28. október. Framkvæmdastjórar í deildinni tippa á að Los Angeles Lakers standi uppi sem sigurvegari næsta sumar.

Þetta er sjöunda árið sem tekin er saman könnun meðal framkvæmdastjóra félaganna í deildinni, en hún gefur oft ágæta mynd af því sem koma skal.

46% aðspurðra framkvæmdastjóra eru á því að það verði LA Lakers sem standi uppi sem sigurvegari næsta sumar, en liðið tapaði fyrir Boston í úrslitum í júní sl.

Aðeins 19% spá því að Boston muni verja titil sinn og 12% spá því að New Orleans verði meistari í fyrsta skipti í sögu félagsins. Þetta var í fyrsta skipti í fimm ár sem meirihluti framkvæmdastjóra spáir San Antonio Spurs ekki titlinum, en aðeins 5% þeirra hallast að sigri liðsins í sumar.

56% framkvæmdastjóra spá því að LeBron James hjá Cleveland verði kjörinn verðmætasti leikmaður deildarinnar í vetur, 37% hallast að því að Kobe Bryant hjá Lakers vinni verðlaunin annað árið í röð og 7% tippa á að það verði Chris Paul hjá New Orleans Hornets.

Þegar kemur að því að spá um hver verði kjörinn nýliði ársins spá 48% því að Michael Beasley hjá Miami verði fyrir valinu, en 30% tippa á Greg Oden hjá Portland Trailblazers - en hann er nú að spila sína fyrstu leiki í deildinni eftir að hafa meiðst á undirbúningstímabilinu í fyrra og misst af allri leiktíðinni.







Paul og Howard bestir í sinni stöðu
Chris Paul þykir hafa tekið við af Steve Nash sem besti leikstjórnandi NBA deildarinnarNordicPhotos/GettyImages

Framkvæmdastjórarnir eru ár hvert beðnir að meta hver sé besti leikmaður deildarinnar í hverri stöðu fyrir sig.

Þeir Chris Paul hjá New Orleans og Dwight Howard hjá Orlando voru í fyrsta skipti valdir besti leikstjórnandinn og besti miðherjinn.

Paul hlaut 89% atkvæða sem besti leikstjórnandinn og Howard 56% atkvæða sem besti miðherjinn. Árið áður voru það Steve Nash hjá Phoenix og Yao Ming hjá Houston sem kjörnir voru bestu mennirnir í þessum leikstöðum.

Kobe Bryant var sjöunda árið í röð álitinn besti skotbakvörðurinn í deildinni með 93% atkvæða, LeBron James fékk 93% atkvæða sem besti minni framherjinn og Tim Duncan fékk 52% atkvæða sem besti kraftframherjinn í deildinni.

Sjöunda árið í röð var Kobe Bryant kjörinn sá leikmaður sem flestir framkvæmdastjórarnir vildu láta taka síðasta skotið í leik og fékk 89% atkvæða í þeim flokki.

Dirk Nowitzki hjá Dallas fékk 67% atkvæða sem besti erlendi leikmaðurinn í deildinni og LeBron James fékk 67% atkvæða þegar spurt var hvaða leikmann framkvæmdastjórarnir myndu velja til að byggja upp lið í kring um.

Aðrir molar úr könnuninni:

Besti þjálfarinn var Gregg Popovich hja San Antonio (54%), Utah þótti eiga besta heimavöllinn (44%), Kevin Garnett þótti besti varnarmaðurinn (44%), Andrew Bynum hjá Lakers þótti líklegastur til að slá í gegn í vetur (19%)

New Orleans þótti skemmtilegasta liðið til að horfa á (27%), Miami og Portland þóttu líklegust til að bæta sig mest í vetur (26%), Mike D´Antoni þótti besti sóknarþjálfarinn (54%), Chris Paul þótti fljótasti leikmaður deildarinnar með bolta (37%) og þá þótti Rudy Fernandez hjá Portland líklegasti erlendi nýliðinn til að eiga gott tímabil (52%).



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×