Körfubolti

Anthony falur hjá Denver?

Carmelo Anthony
Carmelo Anthony NordcPhotos/GettyImages

Forráðamenn Denver Nuggets eru tilbúnir að ræða málin ef þeir fá góð tilboð í stjörnuleikmanninn Carmelo Anthony í sumar. Þetta kemur fram á Denver Post í dag.

Anthony var einn stigahæsti leikmaður NBA deildarinnar í vetur með 25,7 stig að meðaltali í leik, en honum virðist fyrirmunað að haga sér vel utan vallar.

Anthony hefur verið iðinn við að koma sér í vandræði í einkalífinu og var til að mynda tekinn fyrir hraðakstur á laugardaginn síðasta. Það er ekki í fyrsta sinn sem Anthony kemst í kast við lögin.

Forráðamenn Denver hafa líka áhyggjur af háum launakosnaði, sem og þeirri staðreynd að stjörnum prýtt lið félagsins hefur alls ekki náð að standa undir þeim væntingum sem til þess voru gerðar í vetur.

Denver steinlá 4-0 fyrir Lakers í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og hefur raunar ekki unnið einvígi í úrslitakeppni í 15 ár.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×