Körfubolti

Enn vinna Boston og Cleveland

LeBron James var tekinn föstum tökum í nótt
LeBron James var tekinn föstum tökum í nótt

Sigurganga Boston Celtics og Cleveland Cavaliers í NBA deildinni hélt áfram í nótt þegar ellefu leikir voru á dagskrá.

Boston lagði New Orleans á heimavelli sínum 94-82 og hefur þar með unnið fjórtán leiki í röð. Liðið hefur ekki náð annari eins sigurgöngu síðan árið 1986, en það ár vann liðið meistaratitilinn.

Boston er með 22 sigra og 2 töp, en það er besta byrjun liðs í NBA síðan Chicago Bulls byrjaði 23-2 leiktíðina 1995-96.

Paul Pierce var stigahæstur hjá Boston með 28 stig og Kevin Garnett var með 19 stig og 10 fráköst. David West skoraði 23 stig og hirti 13 fráköst fyrir New Orleans og Chris Paul skoraði 20 stig og gaf 14 stoðsendingar.

James Posey sneri þarna aftur til Boston með nýja liði sínu eftir að hafa orðið meistari með Boston á síðustu leiktíð. Hann fékk afhentan meistarahring sinn í nótt.

Ellefu í röð hjá Cleveland

Cleveland Cavaliers er á viðlíka siglingu og Boston og í nótt vann liðið 11. sigurinn í röð þegar það skellti Philadelphia á heimavelli 88-72. Þar með jafnaði Cleveland félagsmet yfir flesta sigra í röð, en það hefur fjórum sinnum áður í sögunni unnið ellefu í röð.

LeBron James skoraði 28 stig fyrir Cleveland, sem var án Zydrunas Ilgauskas í leiknum. Willie Green skoraði 19 stig fyrir Philadelphia.

Þá náði LA Lakers að hefna fyrir tapið óvænta gegn Sacramento á dögunum þegar liðin áttust við á ný í nótt. Lakers vann að þessu sinni 112-103 þar sem Kobe Bryant skoraði 32 stig fyrir Lakers.

Úrslitin í nótt:

Boston Celtics 94 - New Orleans Hornets 82

Cleveland Cavaliers - 88 Philadelphia 76ers 72

Detroit Pistons 114 - Indiana Pacers 110

Golden State Warriors 108 - Houston Rockets 119

LA Lakers 112 - Sacramento Kings 103

Memphis Grizzlies 103 - Chicago Bulls 96

Miami Heat 73 - Atlanta Hawks 87

Minnesota Timberwolves 86 - San Antonio Spurs 98

New Jersey Nets 79 - Toronto Raptors 101

Phoenix Suns 113 - Orlando Magic 112

Portland Trail Blazers 112 - LA Clippers 120 (tvíframl.)

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×