Körfubolti

Barry-fjölskyldan heldur tryggð við Houston

Barry hefur engu gleymt í troðlistinni þrátt fyrir að vera að nálgast fertugt
Barry hefur engu gleymt í troðlistinni þrátt fyrir að vera að nálgast fertugt NordcPhotos/GettyImages

Bakvörðurinn Brent Barry varð í dag þriðji maðurinn í fjölskyldu sinni til að semja við Houston Rockets í NBA deildinni. Hann gerði tveggja ára samning við Rockets eftir að hafa spilað með San Antonio árið á undan.

Faðir hans, heiðurshallarmeðlimurinn Rick Barry, spilaði með Rockets árin 1978-80 og bróðir Brent, Jon Barry, spilaði einnig með Houston árin 2004-06.

Brent Barry varð NBA meistari með San Antonio árin 2005 og 2007. Hann er 36 ára gamall og margir muna eftir því þegar hann vann troðkeppnina um stjörnuhelgina árið 1996 - en hann er eini hvíti leikmaðurinn sem hefur hlotið þann heiður síðan keppnin var fyrst haldin árið 1984.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×