Körfubolti

Livingston fær annað tækifæri

Livingston lenti í skelfilegum meiðslum fyrir 19 mánuðum síðan
Livingston lenti í skelfilegum meiðslum fyrir 19 mánuðum síðan NordicPhotos/GettyImages

Bakvörðurinn Shaun Livingston hefur undirritað tveggja ára samning við Miami Heat í NBA deildinni, einum og hálfu ári eftir að hræðileg meiðsli voru talin hafa bundið endi á feril hans.

Livingston var valinn fjórði í nýliðavalinu af LA Clippers árið 2004 og þótti mikið efni, en í febrúar á síðasta ári fór hann úr hnjálið í leik og sleit þrjú liðbönd.

Fæstir áttu von á því að Livingston myndi geta spilað í NBA aftur, en hann hefur nú landað samningi við Miami.

Livingston hefur enn ekki viljað horfa á myndbandsupptöku af því þegar hann meiddist, en eins og sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni, var það ekki falleg sjón.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×