Hlúum að íslenskri hönnun Eyjólfur Pálsson skrifar 5. nóvember 2008 04:00 Íslensk hönnun, gæði hennar og velgengni, hefur verið mér hugleikin um langt árabil. Íslenskum hönnuðum fjölgar jafnt og þétt. Tilkoma Listaháskóla Íslands, sem og starf undirbúningsdeilda í hönnun við Iðnskólann í Reykjavík og Hafnarfirði, hefur orðið til þess að áhugi á hönnun hefur vaxið ört. Ef til vill mætti þó áhugi hins opinbera á íslenskri hönnun vera enn meiri og koma betur fram í verki, til dæmis þegar val stendur á milli íslenskrar og erlendrar hönnunar. Varla líður sá dagur að ekki þurfi að velja búnað í opinberar byggingar, fyrirtæki, samkomuhús eða á heimili landsmanna. Ég vil því hvetja þá sem að málum koma að hugleiða fyrst af öllu hvort ekki megi finna það sem leitað er að meðal verka okkar ágætu íslensku hönnuða. Ég veit vel að ekki er alltaf hægt að velja það sem íslenskt er, en í guðanna bænum, gefið íslenskri hönnun tækifæri. Kannið hvað íslenskir hönnuðir hafa fram að færa og hver veit nema þar finnist einmitt það sem hentar hverju sinni. Ef ekki þá verður að sjálfsögðu að leita annað og mætti jafnvel flétta saman íslenska og erlenda hönnun. Þess eru dæmi að efnt hafi verið til samkeppni um hönnun húsgagna fyrir ákveðin verkefni, eins og t.d. í Höfða. Þrír íslenskir aðilar komu með hugmyndir og í lokin var ein tillagan valin og húsgögn smíðuð eftir henni. Mjög vel tókst til og sama má segja um búnaðinn í Hátíðasal Háskóla Íslands sem og bekki og stóla sem hannaðir voru sérstaklega fyrir Hæstarétt. Gott dæmi um val á íslenskri hönnun er búnaður í húsnæði Sambands íslenskra sveitarfélaga í Borgartúni. Þar reyndu menn af fremsta megni að velja íslenska hönnun og í lokin var útbúinn lítill upplýsingabæklingur um húsgögnin og listaverkin og höfunda þeirra. Utanríkisþjónustan hefur einnig lagt sitt af mörkum til stuðnings íslenskri hönnun með því að prýða sendiráð og sendiráðsbústaði víða um heim með íslenskum húsgögnum og öðrum búnaði og er það vel. Ekki þarf endilega að hengja sig bara í húsgögn þegar hugsað er til íslenskrar hönnunar. Það sést best á því að íslensk fatahönnun verður æ meira áberandi og konur, sérstaklega í opinbera geiranum, klæðast nú gjarnan fötum sem þekktir íslenskir fatahönnuðir hafa hannað. Fleiri mættu nýta sér þennan möguleika og gott dæmi þar um er að Steinunn Sigurðardóttir hefur hannað nýja flugfreyjubúninga fyrir Icelandair og sækir innblástur í íslenska náttúru og sögu félagsins. Þegar fyrirtæki og stofnanir, og auðvitað almenningur líka, kaupa gjafir ætti skilyrðislaust að skoða íslenska hönnun fyrst. Mikið er til af íslensk-hannaðri gjafavöru; hnífapör, bollar, fatahengi, karöflur, hillur, kollar, mottur, vasar og glös, allt íslenskt. Ég er ekki að segja að eingöngu skuli kaupa íslenskt en falli það að smekk og aðstæðum er rétt að skoða fyrst það sem íslenskt er. Þegar rætt er um nýsköpun finnst mér grundvallaratriði að menn hugsi út í að hlutir séu söluvænlegir. Ef hönnun er aðeins skúlptúr, minnismerki hönnuðar, verða ekki framleidd nema örfá eintök, hluturinn verður ekki settur í framleiðslu né fjöldasölu. Afraksturinn verður lítill sem enginn og hönnuðurinn fær ekki einu sinni sín höfundarlaun. Verk hans vekur athygli í smátíma en selst ekki og býr ekki til neina peninga! Allt snýst þetta í raun um að skapa atvinnu. Skoðun mín er sú að opinberir aðilar þurfi að ganga á undan með góðu fordæmi, velja íslenskt og hvetja þar með hæfileikaríka íslenska hönnuði til dáða. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Höfundur er húsgagnahönnuður og kaupmaður í Epal. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyjólfur Pálsson Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar