Skoðun

Hver ætlar að hjúkra þér?

Helga Rósa Másdóttir skrifar

Öryggi og gæði krefjast lögfestrar umgjarðar og réttrar fjármögnunar.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur undanfarið fjallað um tvær skýrslur vinnuhópa heilbrigðisráðuneytisins um mönnunarviðmið í hjúkrun. Þar er lögð áhersla á að mönnun byggi á gagnreyndri þekkingu, mældri hjúkrunarþörf og gæðum þjónustunnar. Niðurstöður síðari skýrslunnar sýna um 40% undirmönnun miðað við stöðluð mönnunarviðmið á 16 bráðalegudeildum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Að mati Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er slík staða með öllu óásættanleg.

En hvernig er staðan á hjúkrunarheimilum landsins? Er þar nægilegt fagfólk til að mæta hjúkrunarþörfum íbúa og tryggja öryggi þeirra?

Embætti landlæknis gaf árið 2015 út viðmið um mönnun á hjúkrunarheimilum. Samkvæmt þeim er æskilegt að hjúkrunarfræðingar séu um 27% af mannafla í umönnun og að hlutfallið fari ekki niður fyrir 20%. Æskilegt hlutfall faglærðs starfsfólks er 78% og lágmarkshlutfall 57%. Mönnun á jafnframt að taka mið af heilsufari, færni og hjúkrunarþörfum íbúanna.

Aðgengi að gögnum um mönnun í hjúkrun á Íslandi er mjög takmarkað. Á heimasíðu Embættis landlæknis má finna tvær úttektarskýrslur um hjúkrunarheimili frá árinu 2026, annars vegar um Hraunbúðir og hins vegar Sóltún, auk skýrslu um Skjól frá árinu 2024.

Niðurstöður úttekta á Hraunbúðum og Skjóli eru sláandi. Á Hraunbúðum, þar sem úttekt var gerð í kjölfar óvænts atviks, var hlutfall hjúkrunarfræðinga aðeins 12% og faglærðs starfsfólks 27%. Á Skjóli, þar sem úttekt var gerð vegna ábendinga um aðbúnað og þjónustu, voru hlutföllin 15% og 33%.

Á báðum heimilum voru hlutföllin langt undir lágmarksviðmiðum Embættis landlæknis. Á Hraunbúðum var hlutfall hjúkrunarfræðinga 41% undir lágmarksviðmiðum og hlutfall faglærðs starfsfólks 53% undir þeim. Á Skjóli voru samsvarandi frávik 28% og 42%. Þetta eru alvarleg frávik sem kalla á markvissar úrbætur og eftirfylgni.

Athygli vekur að í úttektinni á Sóltúni árið 2026 var ekki lagt mat á mönnun. Úttektin var hluti af reglubundnu eftirliti og beindist einkum að gæðum interRAI-skráningar og lyfjaferlum. Rannsóknir hafa þó sýnt fram á tengsl milli ónógrar mönnunar fagfólks á hjúkrunarheimilum og lakari gæða þjónustunnar, auk þess sem hærra hlutfall hjúkrunarfræðinga stuðlar að auknu öryggi íbúa.

Upplýsingar um mönnun á hjúkrunarheimilum virðast einkum birtast í stökum úttektum Embættis landlæknis, oft í kjölfar óvæntra atvika eða ábendinga um að bæta þurfi þjónustuna. Það vekur spurningar um heildaryfirsýn. Án reglulegrar söfnunar og birtingar upplýsinga um mönnun er erfitt að meta stöðuna og skipuleggja þjónustuna til framtíðar.

Síðustu misseri hefur umræðan um hjúkrunarheimili að mestu snúist um byggingu húsnæðis og fjölgun rýma. Sú uppbygging er nauðsynleg og jákvætt að heilbrigðisyfirvöld leggi aukna áherslu á hjúkrunarrými sem henta þörfum íbúa. Henni verður þó að fylgja áætlun um mönnun. Innan veggja hjúkrunarheimila þarf að starfa nægilega stór og rétt samsettur hópur starfsfólks með þá þekkingu og færni sem þarfir íbúanna kalla á.

Mönnunarviðmið þarf að festa í sessi með lögum eða reglugerðum, enda virðast tilmæli ein og sér ekki nægja til að tryggja að þeim sé fylgt né að eftirlit sé haft með þeim. Skýr lagaleg umgjörð styrkir ábyrgð og stuðlar að því að öryggi íbúa og gæði hjúkrunarþjónustu séu tryggð með samræmdum hætti.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur um árabil kallað eftir lögbundnum mönnunarviðmiðum sem byggja á hjúkrunarþyngd og faglegu mati. Stjórnvöld þurfa að tryggja að slík viðmið verði grundvöllur mönnunar og að fjárveitingar taki mið af raunverulegri hjúkrunarþörf.

Tillaga vinnuhóps heilbrigðisráðuneytisins um stofnun embættis yfirhjúkrunarfræðings innan stjórnsýslunnar er gríðarlega mikilvæg í þessu samhengi. Slíkt embætti hefði það hlutverk að styrkja stefnumótun í hjúkrun, leiða innleiðingu samræmdra mönnunarviðmiða og tryggja eftirfylgni og viðeigandi viðbrögð við ónógri mönnun. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur lengi beitt sér fyrir stofnun embættisins og fagnar því að tillagan hafi verið lögð fram í skýrslu starfshóps heilbrigðisráðuneytis.

Félagið bindur jafnframt vonir við að stjórnvöld haldi áfram þeirri vinnu sem þegar hefur verið hafin við þróun og innleiðingu mönnunarviðmiða í hjúkrun og fylgi jafnframt tillögunum eftir með því að tryggja nauðsynlegt fjármagn til að hrinda þeim í framkvæmd.

Höfundur er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. 




Skoðun

Sjá meira


×