Lækning við kvefi á næsta leiti 5. febrúar 2008 07:57
Breskir vísindamenn eru nú vongóðir um að fundist geti lækning við kvefi. Þeim tókst nýlega að smita erfðabreytta mús með kvefi þannig að auðveldara verður í framtíðinni að prófa ný kvefmeðul. Kvef er sjúkdómur sem aðeins herjar á menn og simpansa. Því þykja það tímamót að það tókst að smita músina með kvefi. Það voru vísindamenn við Imperial háskólann í London sem tókst að búa til hina erfðabreyttu mús. Prófessorinn Sebastian Johnston stjórnaði þessu verki og hann segir að auk kvefrannsókna muni erfðabreyttar mýs einnig gangast vel í rannsóknum á nýjum lyfjum gegn öðrum öndunarfærasjúkdómum eins og asma. Það var breska heilbrigðisráðuneytið sem fjármagnaði tilraunir vísindamannanna og þar á bæ eru menn að vonum ánægðir með árangurinn enda talið að hann geti leitt til tímamóta í rannsóknum á öðrum sjúkdómum og kvillum. Vírusinn sem veldur kvefi var uppgvötvaður fyrir 50 árum en það hefur ætíð verið erfiðleikum bundið að rannsaka hann þar sem tilraunadýr hafa ekki legið á lausu. Að vísu var notast við sjálfboðaliða við slíkar rannsóknir á síðustu öld en þeim var hætt árið 1989 þar sem árangur af þeim var nær enginn. Nú þegar hægt er að smita mýs er sá hjalli að baki.
Vísindi Mest lesið Dó fjórum árum eftir að hún hvarf Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Kom verðmætum fyrir í röngum bíl sem hvarf á brott Innlent Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Erlent Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022 Innlent Baráttan hafin á TikTok: Traktor í Skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Innlent Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Innlent Trump vann öll sveifluríkin Erlent Hætta sem sáttasemjarar í deilu Ísraela og Hamas Fréttir Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Innlent Fleiri fréttir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Þrír handteknir vegna dauða Liam Payne Vilja banna 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla Fundu ellefu lík í yfirgefnum pallbíll Ávarp Bidens: „Þú getur ekki elskað nágranna þinn bara þegar þið eruð sammála“ Vill taka vantraustið fyrir strax Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Ríkissjórn Scholz er sprungin Óskaði Trump til hamingju og ítrekaði friðsamleg valdaskipti Ríkisstjórn Scholz á barmi þess að springa Harris búin að hringja í Trump og undirbýr ávarp Óttast verulegt bakslag á mörgum vígstöðvum Baráttan um Bandaríkin: Donald Trump verður forseti, og hvað svo? Þjóðarleiðtogar kasta kveðju á Trump Trump lýsir yfir sigri: Guð hafi bjargað honum svo hann gæti bjargað Ameríku Andstæðingar þungunarrofs unnu í Flórída Donald Trump forseti á nýjan leik Mikill fögnuður hjá Trump-liðum Sjá meira