Kosið um fjögur sæti í stjórn KSÍ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. febrúar 2008 11:31 Halldór B. Jónsson lætur af sæti sínu í stjórn KSÍ eftir áralangt starf fyrir sambandið. Mynd/Róbert
Fimm hafa boðið sig fram í þau fjögur sæti sem eru laus í stjórn Knattspyrnusambands Íslands. Ársþing KSÍ fer fram á morgun í höfuðstöðvum KSÍ en ekki er kosið um formann sambandsins í ár. Formaður er kjörinn til tveggja ára í sinn og var Geir Þorsteinsson kjörinn formaður í fyrra. Af þeim fjórum sem ganga úr stjórn KSÍ í ár gefa þrír kost á sér til endurkjörs. Aðeins Ástráður Gunnarsson frá Reykjanesbæ gefur ekki kost á sér á nýjan leik. Ingibjörg Hinriksdóttir, Kópavogi, Jón Gunnlaugsson, Akranesi og Lúðvík S. Georgsson, Reykjavík gefa kost á sér á nýjan leik en Jón er ritari stjórnar og Lúðvík varaformaður hennar. Þar að auki gefa þeir Björn Guðbjörnsson frá Reykjavík og Rúnar Vífill Arnarson frá Keflavík kost á sér til stjórnarsetu. Þá hefur Halldór B. Jónsson ákveðið að draga sig úr stjórn KSÍ vegna veikinda. Hann hefur lengi gegnt embætti varaformanns stjórnarinnar. Kosið verður í sæti hans til eins árs og hefur Þórarinn Gunnarsson frá Reykjavík einn boðið sig fram í þeirri kosningu. Á hverju ársþingi er kosið um aðalfulltrúa landsfjórðungunna og hafa allir þeir sem nú gegna því embætti gefið kost á sér til áframhaldandi starfa. Eins árs kjörtímabili varamanna í aðalstjórn KSÍ lýkur nú og verður kosið á ný á ársþinginu í þau sæti. Jóhannes Ólafsson frá Vestmannaeyjum, Kjartan Daníelsson og Þórarinn Gunnarsson frá Reykjavík eru fráfarandi varamenn og bjóða sig aftur fram til áframhaldandi setu auk Sigvalda Einarssonar frá Kópavogi.
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira