Körfubolti

Mo Williams til Cleveland

Mo Williams er nýjasti liðsfélagi LeBron James hjá Cleveland
Mo Williams er nýjasti liðsfélagi LeBron James hjá Cleveland NordcPhotos/GettyImages

LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers í NBA deildinni hafa fengið til liðs við sig nýjan leikstjórnanda eftir að þrjú félög í deildinni skiptu á leikmönnum í gær.

Cleveland, Milwaukee og Oklahoma City (áður Seattle Supersonics) gengu að samningaborðinu í gær og úr varð að sex leikmenn skipta um heimilisfang.

Leikstjórnandinn Mo Williams fer frá Milwaukee til Cleveland, en hann var með 17 stig og 6 stoðsendingar að meðaltali hjá Milwaukee á síðustu leiktíð.

Cleveland sendir Damon Jones til Milwaukee og Joe Smith til Oklahoma City, Milwaukee fær Luke Ridnour og Adrian Griffin frá Oklahoma. Lið Oklahoma fær auk þess Desmont Mason frá Milwaukee. 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×