Körfubolti

Cassell áfram hjá Celtics

NordicPhotos/GettyImages

Leikstjórnandinn Sam Cassell ætlar að halda áfram að spila með meisturum Boston Celtics í NBA deildinni.

Cassell, sem er 38 ára gamall, gekk í raðir Boston fyrir síðasta tímabil og hjálpaði félaginu að krækja í sinn 17. meistaratitil. Hann skoraði rúm 7 stig að meðaltali í leik.

Cassell hafði legið undir feldi í sumar um hvort hann ætti að halda áfram að spila eða snúa sér að þjálfun.

"Ég hefði líklega fengið samning hjá öðru félagi, en af hverju ætti ég að gera það?" sagði Cassell.

Þá er Boston að reyna að sannfæra framherjann PJ Brown um að hætta við að hætta, en Brown gekk einnig í raðir Celtics fyrir síðasta tímabil og nýttist liðinu ágætlega af bekknum.

Boston mætir til leiks í vetur með svipað lið og lagði Lakers 4-2 í úrslitum deildarinnar í sumar, en þurfti reyndar að sjá á eftir hinum öfluga James Posey í raðir New Orleans.







NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×