Körfubolti

Del Negro þjálfar Bulls

NordcPhotos/GettyImages

Forráðamenn Chicago Bulls gengu í vikunni frá samningi við Vinnie del Negro um að taka við þjálfun liðsins. Del Negro hefur aldrei þjálfað áður en starfaði sem aðstoðar framkvæmdastjóri Phoenix Suns.

Del Negro lék lengst af með San Antonio Spurs á sínum tíma, en hann fær það verkefni að taka við Chicago-liði sem hefur verið í krísu síðustu misseri.

Þá hefur Mike Woodson, þjálfara Atlanta Hawks, verið boðin tveggja ára framlenging á samningi sínum. Hann stýrði Atlanta í úrslitakeppnina í vor í fyrsta sinn í mörg ár og náði liðið að standa í Boston Celtics í fyrstu umferðinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×