Glitnir selur Moderna Life fyrir tæpa 4 milljarða 17. apríl 2009 08:23
Glitnir hefur selt sænska tryggingarfélagið Moderna Life til breska tryggingarfélagsins Chesnara. Söluverðið er rétt rúmlega 30 milljónir dollara eða tæplega 4 milljarða kr. Moderna Life var áður í eigu Milestone í gegnum dótturfélag sitt í Svíþjóð Reuters greinir frá þessu í dag og vitnar í tilkynningu frá Chesnara um málið. Fylgir sögunni að Chesnara sé á höttunum eftir fleiri eignum í fjarmálaþjónustugeiranum. Í tilkynningunni segir að stærð Moderna Life muni ekki koma í veg fyrir getu Chersnara til að leita eftir öðrum fjárfestingartækifærum. "Chesnara er með skýra stefnu um að kaupa vel staðsettar eignir í fjármálaþjónustugeiranum," segir í tilkynningunni. Moderna Life var með 74.000 viðskiptavini við árslok 2008. Tekjur þess á árinu námu 152 milljónum sænskra kr. eða tæpir 2,3 milljarðar kr. Félagið skilaði tapi á árinu upp á 31 milljón sænskra kr. eða um 450 milljónum kr. Chesnara er einkum þekkt fyrir að hafa fest kaup á tryggingarfélaginu Westminster Assurance árið 2005.
Mest lesið Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Viðskipti innlent Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Viðskipti erlent „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Samstarf Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira