KR-ingar í vandræðum í Grikklandi - Larissa að vinna 1-0 í hálfleik Ómar Þorgeirsson skrifar 23. júlí 2009 17:45 Frá fyrri leik KR og Larissa á KR-vellinum. Mynd/Valli
KR-ingar eiga í vök að verjast í seinni leik sínum gegn Larissa í Evrópudeildinni á Grikklandi og staðan er 1-0 heimamönnum í vil í hálfleik. KR-ingar unnu fyrri leikinn sem kunnugt er 2-0 á KR-vellinum og eru því enn með yfirhöndina í einvíginu en allur seinni hálfleikurinn er eftir. KR-ingar gáfu heimamönnum reyndar ekkert eftir framan af leik og voru sterkari aðilinn ef eitthvað er. Líkt og í fyrri leiknum á KR-velli voru KR-ingar mjög fastir fyrir og skipulagðir varnarlega og Grikkirnir virkuðu pirraðir við mótlætið. Leikmenn Larissa tóku hins vegar forystu eftir tæplega hálftíma leik og þar var Athanasios Tsigkas að verki. Tsigkas fékk sendingu frá vinstri og afgreiddi boltann í netið frá vítateigslínunni, óverjandi fyrir Stefán Loga Magnússon í marki KR. KR-ingar fengu nokkur hálffæri til þess að skora en það var ekki sama flæði í leik þeirra og í fyrri leiknum og Grikkirnir virkuðu mun grimmari þegar líða tók á fyrri hálfleikinn. Staðan var samt enn 1-0 fyrir Larissa þegar flautað var til hálfleiks og ljóst að spennandi seinni hálfleikur er framundan þar sem KR-ingar verða að berjast áfram fyrir lífi sínu í Evrópudeildinni.
Íslenski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira