Körfubolti

Naumur sigur KR-inga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Semaj Inge í leik með KR.
Semaj Inge í leik með KR. Mynd/Vilhelm

Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í kvöld. KR vann nauman sigur á Hamar eftir að hafa verið undir næstum allan leikinn.

KR var átta stigum undir í hálfleik en skoraði svo 41 stig í fjórða leikhluta sem nægði til að sigla fram úr á lokamínútu leiksins.

Keflavík vann öruggan sigur á Tindastóli á Sauðárkróki, 88-69, og Grindavík vann Stjörnuna á heimavelli, 93-83.

KR og Keflavík eru komin upp að hlið Njarðvíkur á toppi deildarinnar en öll liðin eru með tólf stig. Njarðvík á þó leik til góða.

Stjarnan er svo í fjórða sæti með tíu stig, Grindavík er í sjötta sæti með átta stig, Hamar í sjöunda með sex stig og Tindastóll í níunda með fjögur stig.

Úrslit kvöldsins:

Grindavík - Stjarnan 93-83 (38-30)



Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 27, Ómar Örn Sævarsson 19 (12 fráköst), Darrell Flake 16 (8 fráköst), Brenton Birmingham 13, Arnar Freyr Jónsson 8, Þorleifur Ólafss. 7, Björn Brynjólfss. 3.

Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 29 (8 frák., 6 stoðs.), Jovan Zdravevski 22, Kjartan Atli Kjartansson 13 (9 frák.), Magnús Helgason 8 (9 frák.), Fannar Freyr Helgason 5 (15 frák.), Ólafur Aron Ingvason 4, Birgir Björn Pétursson 2.

Tindastóll - Keflavík 69-88 (26-40)

Stig Tindastóls: Svavar Atli Birgisson 22 (10 frák.), Helgi Rafn Viggósson 13, Axel Kárason 12 (9 frák.), A. Daanish 7 (14 frák.), Helgi Margeirsson 7, Michael Giovacchini 3, Hreinn Birgisson 2, Sveinbjörn Skúlason 2, Sigmar Björnsson 1.

Stig Keflavíkur: Sigurður Þorsteinsson 25 (15 frák.), Rashon Clark 22 (19 frák.), Davíð Þór Jónsson 12, Hörður Axel Vilhjálmsson 10, Elentinus Margeirsson 6, Þröstur Leó Jóhannsson 5, Sverrir Þór Sverrisson 4, Gunnar Einarsson 4.

KR - Hamar 91-88 (26-34)

Stig KR: Semaj Inge 27, Tommy Johnson 18, Ólafur Már Ægisson 14, Brynjar Björnsson 13, Finnur Magnússon 8 (8 frák.), Darri Hilmarsson 6, Fannar Ólafsson 3 (8 frák.), Jón Orri Kristjánsson 2.

Stig Hamars: Andre Dabney 27 (8 frák, 7 stoðs.), Marvin Valdimarsson 27, Oddur Ólafsson 10, Svavar Páll Pálsson 9 (8 frák, 7 stoðs.), Ragnar Nathanaelsson 8 (8 frák.), Páll Helgason 4, Vidar Örn Hafsteinsson 3.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×