Körfubolti

Poweradebikar karla: Grindavík og Njarðvík mætast í úrslitaleik

Ómar Þorgeirsson skrifar
Arnar Freyr Jónsson átti fínan leik fyrir Grindavík í kvöld.
Arnar Freyr Jónsson átti fínan leik fyrir Grindavík í kvöld. Mynd/Anton
Leikið var í undanúrslitum Poweradebikars karla í körfubolta í kvöld og þá varð ljóst að boðið verður upp á Suðurnesjaslag í úrslitaleiknum.

Grindvíkingar unnu 95-89 sigur gegn Snæfelli í Grindavík annars vegar og Njarðvíkingar unnu 85-94 sigur gegn KR í Vesturbænum hins vegar.

Hjá Grindavík var Arnar Freyr Jónsson atkvæðamestur með 31 stig en Amani Daanish skoraði 21 stig, Páll Axel Vilbergsson skoraði 17 stig og Ómar Sævarsson 16 stig.

Hjá Snæfelli var Jón Jónsson með 33 stig en Sigurður Þorvaldsson skoraði 21 stig og Hlynur Bæringsson skoraði 15 stig og tók 16 fráköst.

Hjá Njarðvík var Friðrik Stefánsson stigahæstur með 24 stig en Tommy Johnson skoraði 30 stig fyrir KR.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×