Handbolti

Fram sótti tvö stig á Ásvelli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sara Sigurðardóttir átti fínan leik í dag.
Sara Sigurðardóttir átti fínan leik í dag. Mynd/Valli

Fram vann í dag góðan sigur á Haukum, 27-24, í eina leik dagsins í N1-deild kvenna.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og liðin skiptust á að vera með forystu. Framarar sigur þó fram úr á lokamínútum hálfleiksins eftir að heimamenn misstu nokkra leikmenn af velli með skömmu millibili. Staðan í hálfleik var 15-13, Haukum í vil.

Ekkert var skorað fyrstu fimm mínutur síðari hálfleiks en þó svo að markvarsla hafði verið mjög öflug var varnarleikurinn ekkert sérstakur. Bæði lið virtust ætla að bæta úr því í seinni hálfleik.

En það sem varð Haukum að falli í dag var að liðið gerði gríðarlega mörg mistök í sókninni. Leikmenn köstuðu frá sér boltanum hvað eftir annað og það var ekki fyrr en á síðustu fimm mínútum leiksins að Haukarnir fóru að saxa á forskot Framara.

En þá var einfaldlega of naumur tími til stefnu. Haukar náðu að vísu að minnka muninn í eitt mark þegar tvær mínútur voru eftir en misstu þá mann af velli. Framarar skoruðu og tryggðu sér í raun sigurinn.

Markverðirnir Heiða Ingólfsdóttir hjá Haukum og Íris Björk Símonardóttir hjá Fram áttu frábæran leik í dag. Hjá Haukum var Ramune Pekarskyte öflug í sókninni og Hanna G. Stefánsdóttir átti marga góða spretti.

Stella Sigurðardóttir fór mikinn í liði Fram og Karen Knútsdóttir atti mjög fínan síðari hálfleik. Annars var liðsheild Framara mun sterkari í dag og það var það sem skildi á milli liðanna.

Haukar - Fram 24 - 27



Mörk Hauka (skot): Ramune Pekarskyte 8 (12), Hanna G. Stefánsdóttir 8/3 (13/4), Nína B. Arnfinnsdóttir 2 (2), Erna Þráinsdóttir 2 (3), Karen Helga Sigurjónsdóttir 2 (3), Nína K. Björnsdóttir 1 (4), Ester Óskarsdóttir 1 (7).

Varin skot: Heiða Ingólfsdóttir 18/1 (45/3, 40%)

Hraðaupphlaup: 6 (Hanna G. 3, Ramune 2, Karen Helga 1).

Fiskuð víti: 4 (Nína B. 2, Ester 1, Nína K. 1).

Utan vallar: 10 mínútur.

Mörk Fram (skot): Stella Sigurðardóttir 10/1 (19/2), Karen Knútsdóttir 5/1 (7/1), Ásta Birna Gunnarsdóttir 4 (4), Pavla Nevalirova 3 (7), Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 3 (4), Hildur Þorgeirsdóttir 1 (8), Marthe Sördal 1 (1).

Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 15/1 (39/4, 38%).

Hraðaupphlaup: 10 (Stella 3, Ásta Birna 3, Guðrún Þóra 2, Karen 2).

Fiskuð víti: 3 (Guðrún Þóra 1, Ásta Birna 1, Pavla 1).

Utan vallar: 6 mínútur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×