Handbolti

Guðjón Valur á leið í aðgerð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. Nordic Photos/AFP

Guðjón Valur Sigurðsson mun ekki leika síðasta landsleik Íslands í undankeppni EM gegn Eistum því hann er á leið til Þýskalands þar sem hann þarf að leggjast undir hnífinn.

Hornamaðurinn staðfesti þetta við Vísi eftir leikinn gegn Makedónum í Laugardalshöll í dag.

Guðjón Valur flýgur utan á miðnætti og fer svo í aðgerðina á morgun.

Forráðamenn félags Guðjóns, Rhein-Neckar Löwen, voru ekki hrifnir af því að hann skyldi spila síðustu þrjá landsleiki enda er Guðjón Valur meiddur og hefur verið lengi.

Harðjaxlinn Guðjón hefur hingað til ekki látið meiðsli aftra sér frá því að spila og hann krafðist þess að fá að hjálpa liðinu að komast á EM áður en hann færi í aðgerðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×