Ísland fær tvö sæti í Meistaradeild kvenna 2010/2011 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. september 2009 16:45 Valsstelpur verða með í Meistaradeildinni 2009 og 2010. Mynd/Stefán
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur staðfest að Ísland er ein átta þjóða sem fær úthlutað tveimur sætum í Meistaradeild kvenna fyrir keppnistímabilið 2010/2011. Ísland er í áttunda sæti yfir bestan árangur félagsliða í Evrópukeppni undanfarin fimm tímabil. Þetta kemur í frétt á heimasíðu KSÍ. UEFA gaf út lista í dag þar sem þjóðunum er raðað niður eftir árangri og sem fyrr segir er Ísland í áttunda sæti listans, sætinu á undan Noregi. Aðrar þjóðir sem vinna sér inn tvö sæti í Meistaradeildinni eru: Þýskaland, Svíþjóð, Frakkland, Rússland, England, Danmörk og Ítalía. Þetta þýðir að annað sætið í Pepsi-deild kvenna gefur þátttökurétt í Meistaradeild kvenna á næsta tímabili. Valur hefur þegar tryggt sér titilinn en baráttan um annað sætið er gríðarlega hörð því þrjú félög, Breiðablik, Þór/KA og Stjarnan, eru jöfn að stigum fyrir lokaumferðina sem fram fer um komandi helgi. Valur er fulltrúi Íslands í Meistaradeildinni á þessu tímabili og framundan eru leikir við ítalska liðið Torres Calcio. Valsstúlkur leika fyrri leikinn á Ítalíu miðvikudaginn 30. september en síðari leikurinn verður hér heima, miðvikudaginn 7. október.
Íslenski boltinn Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Fleiri fréttir Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings