Körfubolti

Umfjöllun: Spenna í lokin þegar Keflavík lagði Grindavík

Elvar Geir Magnússon skrifar
Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur.
Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur.

Keflavík vann Grindavík í Iceland Express-deildinni í kvöld 97-89. Leikurinn var afbragðsskemmtun en úrslitin gefa aðeins skakka mynd af þeirri spennu sem var undir lokin. Grindvíkingar reyndu við þriggja stiga körfu til að jafna metin þegar fimm sekúndur voru eftir.

Með sigrinum komust Keflvíkingar upp að hlið Njarðvíkinga á toppi deildarinnar en þeir síðarnefndu eiga þó leik inni. Þessi tvö lið mætast einmitt í næstu umferð.

Grindvíkingar þurftu á sigri að halda í kvöld til að reyna að blanda sér í toppbaráttuna. Þeir byrjuðu leikinn hinsvegar mjög illa og varnarleikur þeirra var dapur í fyrri hálfleik. Keflvíkingar náðu mest nítján stiga forystu en staðan í hálfleik var 52-44.

Grindavíkurliðið kom mun grimmara til leiks í seinni hálfleiknum og minnkaði bilið verulega í þriðja leikhluta þar sem það náði forystunni um tíma. Keflavík var með eins stigs forystu fyrir síðasta leikhlutann þar sem spennan var mikil.

Páll Axel Vilbergsson reyndi við þriggja stiga körfu þegar fimm sekúndur voru eftir og hefði getað jafnað metin. Ekki tókst það og Keflvíkingar gerðu þá út um leikinn. Sverrir Sverrisson rak smiðshöggið laglega þegar hann skoraði magnaða flautukörfu frá miðju. Átta stiga sigur Keflavíkur staðreynd.

Þetta var fjórði tapleikur Grindavíkur í deildinni en liðinu var fyrir mót spáð Íslandsmeistaratitlinum. Keflvíkingar eru hinsvegar á góðu skriði og hafa unnið sjö deildarleiki í röð. Hörður Axel Vilhjálmsson átti mjög góðan leik fyrir Keflavík,var stigahæstur í liðinu með 22 stig. Darrell Flake var í sérflokki hjá gestunum.

Keflavík - Grindavík 97-89 (52-44)



Stig Keflavíkur: Hörður Axel Vilhjálmsson 22, Sverrir Þór Sverrisson 21, Rashon Clark 21, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 14, Gunnar Einarsson 11, Þröstur Leó Jóhannsson 8.

Stig Grindavíkur: Darrell Flake 31, Brenton Birmingham 17, Páll Axel Vilbergsson 13, Þorleifur Ólafsson 11, Arnar Freyr Jónsson 7, Ómar Örn Sævarsson 6, Guðlaugur Eyjólfsson 2, Ólafur Ólafsson 2.


Tengdar fréttir

Friðrik: Alltaf vonbrigði að tapa leik

„Slæm byrjun okkar í leiknum var lykillinn að sigri Keflavíkur,“ sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur eftir stórleikinn í Iceland Express deildinni í kvöld.

Hörður Axel: Getum komist í magnaða stöðu

„Þetta voru tvö hörkulið að spila og maður vissi að þetta yrði hörkuleikur," sagði Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, eftir góðan sigur hans liðs á Grindavík í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×