KR-ingar hafa unnið báða bikarleiki sína á Hlíðarenda - hvað gerist í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. ágúst 2009 15:00 Helgi Sigurðsson í leik með Val á móti KR.
Valur og KR mætast í dag á Vodafone-vellinum í síðasta leik átta liða úrslita VISA-bikars karla og sigurvegarinn verður í pottinum ásamt Keflavík, Fram og Breiðablik þegar dregið verður í undanúrslitin. Þetta er ellefti bikarleikur Vals og KR frá upphafi og hefur KR-liðið unnið fimm þessara leikja. Valsmenn hafa unnið tvo leiki og svo tvo leiki til viðbótar eftir vítakeppni. Einn leikur hefur endað með jafntefli en það var fyrri bikarúrslitaleikur liðanna 1990. Valsmenn eru á heimavelli í þessum leik en það hefur þó ekki reynst þeim vel að taka á móti KR-ingum í bikarnum á Hlíðarenda því KR-ingar hafa unnið báða bikarleiki sína undir Öskjuhlíðinni og Valsmenn náðu meira segja ekki að skora í hvorugum leiknum. Líkt og í hin skiptin mætir annað liðið í leikinn sem ríkjandi bikarmeistari en KR-ingar unnu einmitt bikarinn í fyrra. KR vann 1-0 sigur á Val á Hlíðarenda í átta liða úrslitum 1989. Heimir GUðjónsson skoraði sigurmarkið beint úr aukaspyrnu á 71. mínútu en Valsmenn voru þá ríkjandi meistarar. Atli Eðvaldsson, núverandi þjálfari Vals, var leikmaður Vals á þessum tíma en gat ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla. Atli hefur aldrei tapað með Val á móti KR. KR vann 2-0 sigur á Val á Hlíðarenda í átta liða úrslitum 1996. Ríkarður Daðason og Guðmundur Benediktsson skoruðu mörk KR-liðsins sem var manni fleiri frá 29. mínútu leiksins. KR-ingar voru þarna ríkjandi bikarmeistarar en töpuðu síðan fyrir ÍBV í undanúrslitunum. Valsmenn hafa síðan á móti slegið KR-ingar út úr bikarnum í tvö síðustu skipti sem liðin hafa mæst á KR-vellinum, unnu 2-1 í átta liða úrslitum 2005 og 3-0 í vítakeppni í sextán liða úrslitum 2007.
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Tindastóll - Álftanes | Stórliðið mætir á Sauðárkrók Körfubolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira