Snæfellingar unnu Reykjanes Cup á sannfærandi hátt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. september 2009 14:43 Hlynur Bæringsson, fyrirliði Snæfells, með Reykjanes Cup bikarinn í mótslok. Mynd/ÓskarÓ
Snæfell tryggði sér í gær sigur á fyrsta Reykjanes Cup mótinu í körfubolta sem verður hér eftir árlegur viðburður í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ. Snæfell vann 18 stiga sigur á Njarðvík, 99-81, í úrslitaleiknum. Snæfell náði frumkvæðinu í öðrum leikhluta og hélt góðri forustu út leikinn þrátt fyrir að missa Sigurð Þorvaldsson Jón Ólaf Jónsson og Pálma Frey Sigurgeirsson alla útaf með fimm villur. Jón Ólafur Jónsson átti enn einn stórleikinn með Snæfelli á þessu móti og skoraði 31 stig á aðeins 25 mínútum. Hlynur Bæringsson sýndi styrk sinn með 18 fráköstum, 12 stigum, 7 stoðsendingum og 4 varin skot. Þeir Emil Þór Jóhannsson (20 stig) og Sigurður Þorvaldsson (15 stig og 10 fráköst) voru einnig öflugir. Hjá Njarðvík voru fáir að finna sig en Magnús Þór Gunnarsson var stigahæstur með 16 stig og Guðmundur Jónsson skoraði 14 stig. Grindavík varð í 3. sæti eftir 87-63 sigur á Keflavík þar sem Ómar Sævarsson (18 stig, 8 fráköst, 4 varin), Guðlaugur Eyjólfsson (17 stig, hitti úr 5 af 5 3ja stiga skotum) og Páll Axel Vilbergsson (17 stig, 8 fráköst) voru atkvæðamestir hjá þeim. Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 12 stig fyrir Keflavík. Stjarnan varð síðan í 5. sæti eftir 106-71 sigur á Breiðablik þar sem Birgir Björn Pétursson var með 17 stig og 10 fráköst í liði Stjörnunnar. Justin Shouse var þó stigahæstur með 22 stig og 7 stoðsendingar. Þorsteinn Gunnlaugsson var með 22 stig og 15 fráköst fyrir Blika. Lokaröðin á fyrsta Reykjanes Cup mótinu 1. Snæfell 2. Njarðvík 3. Grindavík 4. Keflavík 5. Stjarnan 6. Breiðablik
Dominos-deild karla Mest lesið Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Golf Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Fótbolti Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Fleiri fréttir Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Sjá meira