Handbolti

Eimskipsbikar: Tvöfaldur sigur hjá Fram í Eyjum

Ómar Þorgeirsson skrifar
Einar Jónsson, þjálfari kvennaliðs Fram.
Einar Jónsson, þjálfari kvennaliðs Fram. Mynd/Anton

Það var boðið upp á tvíhöfða í Eimskipsbikar karla og kvenna í handbolta í dag þegar karla -og kvennalið Fram öttu kappi við karla -og kvennalið ÍBV í Vestmannaeyjum.

Fram vann báða leikina en kvennaleikurinn fór 18-40 og karlaleikurinn 26-28.

Yfirburðir Framkvenna var mikill gegn ÍBV eins og lokatölur, 18-40, gefa til kynna um.

Eva Hrund Harðardóttir var markahæst hjá Fram með 10 mörk en Marthe Sördal kom næst með 9 mörk og Stella Sigurðardóttir skoraði 6 mörk.

Karlaleikurinn var meira spennandi en staðan var 12-14 í hálfleik. Framarar sigldu sigrinum hins vegar hægt og bítandi í höfn í síðari hálfleiknum og unnu sér sæti í átta-liða úrslitunum.

Andri Berg Haraldsson og Arnar Birkir Hálfdánsson voru markahæstir hjá Fram með 6 mörk en Magnús Stefánsson og Jóhann Karl Reynisson skoruðu 5 mörk hvor.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×