Körfubolti

Guðjón: Nýttum okkur yfirburði inni í teig

Elvar Geir Magnússon skrifar
Guðjón hafði betur gegn Teiti í kvöld.
Guðjón hafði betur gegn Teiti í kvöld.

Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, var að vonum ánægður með að hafa tryggt sér farseðilinn í sextán liða úrslit bikarsins með því að leggja núverandi meistara í kvöld.

„Ég held að það sé óhætt að segja að við höfum verið betri á flestum sviðum körfuboltans í kvöld. Við nýttum okkur ákveðna yfirburði inni í teig til að byrja með. Þegar Stjarnan er án Fannars er erfiðarara fyrir liðið að eiga við stórt lið eins og okkar," sagði Guðjón.

„Við vorum að spila miklu betri vörn en síðast þegar við lékum gegn þeim. Stundum vorum við að gefa þeim ódýrar körfur en á heildina litið var vörnin miklu betri."

„Nú erum við búnir að ryðja eina hindrun úr vegi í þessari keppni. Liðin tvö sem léku til úrslita í fyrra eru farin. Eina sem við óskum okkur í næstu umferð er að fá heimaleik, við höfum ekki fengið heimaleik lengi."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×