Handbolti

Ragnar með tíu mörk og frábæra skotnýtingu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ragnar Óskarsson leikmaður Dunkerque.
Ragnar Óskarsson leikmaður Dunkerque. Mynd(/Heimasíða frönsku deildarinnar
Ragnar Óskarsson endaði tímabilið í frönsku úrvalsdeildinni á frábæran hátt en hann nýtti tíu af tólf skotum sínum í 29-24 sigri Dunkerque á Paris á útivelli. Dunkerque endaði í 4. sæti deildarinnar, 17 stigum á eftir meisturunum í Montpellier.

Ragnar skoraði 6 mörk utan af velli og 4 mörk af vítalínunni. Hann var langmarkahæstur sinna manna og skoraði fjórum mörkum meira en næsti maður. Ragnar endaði tímabilið með 118 mörk í 24 leikjum eða 4,9 að meðaltali í leik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×