Körfubolti

Fannar: Þurftum að vera yfirvegaðir en vorum það ekki

Ómar Þorgeirsson skrifar
Fannar Ólafsson.
Fannar Ólafsson. Mynd/Daníel

„Þetta voru gríðarleg vonbrigði því við leiddum leikinn nær allan tímann. Það er mjög sárt að við stöndum uppi með ekki neitt í leik sem mér fannst við vera betri aðilinn.

Við fengum stóran sjens til þess að klára þetta á lokakaflanum og hefðum þurft að vera yfirvegaðir en vorum það ekki," sagði Fannar Ólafsson hjá KR sem skoraði 11 stig í 90-86 tapi gegn Njarðvík í 32-liða úrslitum Subway-bikarsins í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld.

„Það er grátlegt að við séum fallnir út úr bikarnum en það er eins gott að við lærum eitthvað af þessu dýra tapi," sagði Fannar svekktur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×