Körfubolti

IE-deild karla: Heldur sigurganga Njarðvíkur og Stjörnunnar áfram

Ómar Þorgeirsson skrifar
Justin Shouse hefur leikið vel með Stjörnunni undanfarið.
Justin Shouse hefur leikið vel með Stjörnunni undanfarið. Mynd/Stefán

Þrír leikir fara fram í Iceland Express-deild karla í körfubolta þar sem taplausu liðin Njarðvík og Stjarnan verða til að mynda í eldlínunni. Njarðvík heimsækir Fjölni í Grafarvoginn en Njarðvíkingar hafa unnið alla þrjá leiki sína til þessa.

Fjölnismenn hafa aftur á móti tapað öllum þremur leikjum sínum en töpuðu naumlega gegn Grindvíkingum í síðasta heimaleik sínum þannig að Njarðvíkingar geta búist við erfiðum leik.

Stjarnan tekur á móti FSu í Ásgarði í Garðabæ en Stjörnumenn hafa byrjað tímabilið af krafti og unnið alla þrjá leiki sína til þessa á meðan FSu hefur tapað öllum þremur leikjum sínum.

Þá tekur Breiðablik á móti ÍR í Smáranum í Kópavogi en bæði liðin hafa unnið einn leik og tapað tveimur til þessa. Allir þrír leikir kvöldsins hefjast kl. 19.15.

Leikir kvöldsins:

Stjarnan-FSu

Fjölnir-Njarðvík

Breiðablik-ÍR










Fleiri fréttir

Sjá meira


×