Körfubolti

IE deildin í kvöld: Marvin skoraði 51 stig fyrir Hamar

Brynjar Björnsson átti fínan leik hjá KR og skoraði 16 stig
Brynjar Björnsson átti fínan leik hjá KR og skoraði 16 stig Mynd/Vilhelm

Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld og unnust þeir allir á heimavelli.

Íslandsmeistarar KR eru taplausir eftir 82-73 sigur á ÍR í DHL höllinni í kvöld. Sóknarleikur liðanna var ekki sérlega mikið fyrir augað en varnir beggja liða góðar. KR vann leikinn fyrst og fremst á fráköstunum þar sem liðið hafði mikla yfirburði. ÍR hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni.

Stig KR: Semaj Inge 19, Fannar Ólafsson 17, Brynjar Björnsson 16, Finnur Magnússon 14, Tommy Johnson 8, Skarphéðinn Ingason 5, Darri Hilmarsson 3

Stig ÍR: Nemanja Sovic 21, Steinar Arason 14, Sveinbjörn Claessen 13, Vilhjálmur Steinarsson 9, Hreggviður Magnússon 8, Gunnlaugur Elsuson 4, Kristinn Jónasson 4.

Marvin Valdimarsson fór hamförum í Hveragerði í kvöld þegar Hamar tók á móti FSu. Marvin skoraði 51 stig í stórsigri Hamars 113-74.

Þá vann Njarðvík stórsigur á Tindastól í Njarðvík 108-81 þar sem Jóhann Ólafsson skoraði 36 stig fyrir heimamenn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×